Kynningarfundur fyrir 16-45 ára

Alla miðvikudaga kl. 11:00 er kynningarfundur hjá okkur fyrir þá sem yngri eru, um starfsemi Ljóssins og þá þjónustu sem við bjóðum krabbameinsgreindum. Fjölskyldumeðlimir eru velkomnir með á þá fundi.

Þegar þú kemur fyrst í Ljósið mun starfsmaður taka á móti þér og kynna þá starfsemi og þjónustu sem í boði er. Þú þarft ekki að framvísa læknisbeiðni til að nýta þér endurhæfingarúrræði Ljóssins.

Í Ljósinu leggjum við áherslu á að:

  • bjóða upp á úrval af faglegri þjónustu fyrir alla frá 16 ára aldri
  • skapa þægilegt og jákvætt andrúmsloft
  • bjóða upp á hollan og góðan hádegisverð
  • halda kostnaði þátttakenda í lágmarki
  • sinna allri fjölskyldunni