Jafningjahópur | Karlmenn 16-45 ára

Í Ljósinu er starfandi jafningjahópur fyrir karlmenn á aldrinum 16-45 ára sem greinst hafa með krabbamein.

Hópurinn starfar undir leiðsögn fagfólks Ljóssins, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og markþjálfa.

Reynsla okkar sýnir fram á mikilvægi þess að skapa vettvang fyrir fólk sem hefur gengið í gegnum svipaða lífsreynslu til að koma saman og deila upplifun sinni. Að hitta jafningja, sem hafa innsýn í líðan, hugsanir og þau líkamlegu einkenni sem eru fylgifiskar krabbameins, getur hjálpað til við að takast á við nýjan veruleika.

Markmið hópsins er að hafa gaman, en á sama tíma að auka úthald og þol í félagslegum aðstæðum, ögra þægindarammanum með nýjum áskorunum, deila reynslu sinni og miðla góðum ráðum, fá ráðgjöf og fræðslu fagaðila auk þess að kynnast skemmtilegu fólki.

Vekjum einnig athygli á lokuðum hópi á Facebook þar sem upplýsingar um næstu fundi og fleira skemmtilegt er að finna.

Helstu upplýsingar

Fyrir hverja: Karla, 16-45 ára, sem greinst hafa með krabbamein

Umsjón: Fagfólk Ljóssins

  • Viðtal og styrktarmælingar hjá sjúkraþjálfara
  • Einkaþjálfun á fimmtudögum kl.16:00 í sal Ljóssins
  • Viðtal við iðjuþjálfa um dagleg verkefni
  • Hóptími þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11:00
  • Hádegisverður alla þriðjudaga kl.12:00

Facebook

Þessi hópur er með samfélag á Facebook

Smelltu hér til að ganga í hópinn