Gefðu jólagjöf í starf Ljóssins

Í ár bjóðum við velunnurum Ljóssins enn á ný að gefa þýðingarmikla jólagjöf í formi styrks í fjölskyldustarf miðstöðvarinnar eða í endurhæfingu fyrir ungt fólk.

Styrkurinn er fáanlegur á vefsíðu Ljóssins www.ljosid.is/gjof og þar getur hver og einn valið hvort hann vilji styrkja sérstaklega fjölskyldustarf Ljóssins eða starf unga fólksins. Í kjölfarið fær hann sent gjafabréf í tölvupósti sem hægt er að prenta út og lauma í umslag undir jólatréð.

„Í fyrra buðum við okkar dásamlega samfélagi tækifæri á að gefa vinum og vandamönnum styrk í starf Ljóssins í jólagjöf. Við fundum hvað margir voru farnir að spyrja hvort það væri hægt að gefa í eitthvað tiltekið starf og ákváðum að bregðast við því. Það sem við sáum í fyrra var hvað þetta gerði þeim sem lítið hafa á milli handanna gott að geta gefið þýðingarmikla gjöf en framlagið er frjálst og upphæðin kemur ekki fram á bréfinu sem er sent,“ segir Sólveig Kolbrún Pálsdóttir, kynningarstjóri Ljóssins.

Smelltu hér til að kaupa

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.