Ljósið einungis opið þeim sem eiga bókað í dagskrárliði og viðtöl

Húsnæði Ljóssins er nú einungis opið þeim sem eiga bókað í dagskrárliði og viðtöl hjá fagaðilum. 

Handþvottur og spritt eru kjarninn í einstaklingsbundnum sóttvörnum og við minnum því alla á að þvo hendur eða spritta þegar komið er í húsnæði Ljóssins.

Við biðjum alla um að setja upp grímu við komu í Ljósið og minnum á að ef beðið er eftir eigin niðurstöðum úr Covid-19 skimun eða ef maki eða annar fjölskyldumeðlimur bíður eftir niðurstöðu úr skimun fyrir Covid-19, gilda reglur um sóttkví og þurfa allir íbúar heimilisins að vera í sóttkví þar til niðurstöður liggja fyrir.

Munum einnig að spritta áður en farið er í kaffivélina.

Starfsfólk Ljóssins sótthreinsar yfirborðsfleti í öllum rýmum mjög reglulega.

Höldum áfram að vinna saman að því að tryggja áframhaldandi endurhæfingarstarf í Ljósinu samhliða Covid-19!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.