136 kærleiksgjafir frá Ljósinu til Kærleiks í hverri lykkju

Ljósið afhenti Báru Tómasdóttur nýverið framlag sitt til Kærleiks í hverri lykkju og fengu umsjónarmenn prjónahópsins um leið tækifæri til að fræðast betur verkefnið sem felur í sér að prjóna kærleiksgjafir sem gefnar verða inn á meðferðarheimili á Íslandi.

Samtals prjónuðu ljósberar, aðstandendur og aðrir vinir Ljóssins 136 stykki sem munu vonandi færa þeim sem þurfa hlýju og kærleik frá okkur öllum.  Meðal þess sem var afhent voru peysur, húfur, vettlingar og treflar.

Kærleikur í hverri lykkju er á vegum Minningarsjóðs Einars Darra sem stendur fyrir vitundarvakningu og forvarnarfræðslunni “Eitt líf” með það að markmiði að sporna við og draga úr misnotkun ávana- og fíkniefna, sér í lagi meðal ungmenna.

Ljósið er stolt af því að hafa tekið þátt í þessu verðuga verkefni og við sendum okkar bestu þakkir til allra þeirra sem settu kærleik í hverja lykkju sem og Einrúmi og Álafoss fyrir sitt framlag.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.