Ljósið opnar aftur í litlum skrefum

Í samræmi við heimild heilbrigðisráðherra að fenginni tillögu Þórólfs sóttvarnarlæknis höfum við ákveðið að opna Ljósið í smáum skrefum frá og með 4. maí næstkomandi.

Á meðan tveggja metra reglan er í gildi er húsið einungis opið þeim sem eiga bókaðan tíma hjá fagaðila.

Í fyrstu verður boðið upp á eftirfarandi þjónustu:

  • Einstaklingsviðtöl hjá iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum, sálfræðiráðgjafa, markþjálfa og fjölskyldumeðferðarfræðing í húsakynnum Ljóssins. Einnig verður boðið uppá viðtöl  í gegnum fjarfundabúnaði
  • Heilsunudd
  • Sogæðanudd
  • Snyrting

Einstaklingar sem eiga bókaða tíma munu fá sent sms. Fyrir tímabókanir er móttaka Ljóssins opin virka daga frá 8:00-16:00.

Skráning í ákveðna hóptíma hjá þjálfurum Ljóssins hefst í næstu viku en frekari upplýsingar um það munu berast eftir helgi.

 

Nýtt fyrirkomulag í gönguhópum og óformlegt spjall

Gönguhópar verða á dagskrá með breyttu sniði inn í vorið. Gengið  verður strax á mánudaginn og verða tvær göngur á dagskrá á hverjum degi; Ein styttri og önnur lengri. Í hverjum hópi verða  10 manns að hámarki en skráning og frekari upplýsingar má fá í móttöku Ljóssins í síma 561-3770.

Að auki bjóðum við upp á óformlega spjalltíma fyrir þá sem þurfa en nauðsynlegt er að bóka tíma hjá móttöku.

Aðstæður verða metnar í hverri viku og við stefnum vongóð á að geta boðið upp á frekari fræðslu og námskeið sem fyrst.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.