Tónheilun og hugleiðsla

eftir Berglindi Baldursdóttur 

Tónheilun er frekar nýtt fyrirbrigði hérlendis. Margar jógastöðvar bjóða nú upp á slíkt en um er að ræða nokkurs konar hljóðbylgjumeðferð sem á að ýta undir slökun og vellíðan. Tónarnir eru framkallaðir með því að „spila” á sérstakar skálar úr stáli eða kristal með þar til gerðu áhaldi. Stundum er gong einnig notað. Þessar skálar eru oft kallaðar söngskálar og stálskálarnar tíbetskálar.

Vinsældir tónheilunar fara sívaxandi vegna þess að fólk getur náð djúpslökun á einfaldan hátt, án þess að þurfa að læra einhverja tækni til þess. Þetta getur því verið mjög góð aðferð til að draga úr streitu og kvíða, bæta svefn eða ná góðri slökun, sérstaklega þegar önnur úrræði eru ekki í boði. Til að finna tónheilun á netinu er til dæmis hægt að leita að „sound healing” eða „singing bowls” á YouTube og Spotify.

 

Hugleiðsla

Tónheilun er oft notuð samhliða hugleiðslu. Fyrir ykkur sem hafið áhuga á að læra hugleiðslu, er hægt að prófa sig áfram með því að koma sér þægilega fyrir og einbeita sér að því að anda inn og út. Ekki hafa áhyggjur af því að þurfa að tæma hugann, þar sem það er ekki á allra færi. Leyfið hugsunum að koma og fara. Í stað þess að reyna að tæma hugann er einfaldlega hægt að sjá hugsanir fyrir sér sem ský sem svífur hjá. Fyrir byrjendur í hugleiðslu getur það valdið streitu og pirringi að reyna að hugsa ekki, svo þess vegna er gott að byrja á einhverju einföldu eins og að hlusta á andardráttinn. Það er líka hægt að hlusta á tónheilun, til dæmis ef ykkur langar að útiloka bakgrunnshljóð. 

 

Sa-Ta-Na-Ma

Það er einnig hægt að hlusta á hugleiðslu þar sem leiðbeinandi leiðir mann áfram. Stundum eru skálarnar notaðar með til að hjálpa til við að kyrra hugann. Það eru þó nokkur íslensk hugleiðslumyndbönd á YouTube. Ein vinsæl hugleiðsla er Sa-Ta-Na-Ma en rannsóknir hafa sýnt fram á að hún hefur lífeðlisleg áhrif á heilann. Sú hugleiðsla er blanda af möntru og fingrahreyfingum sem eru sýndar hér. 

 

Kristalsskálar

Í myndbandinu hér fyrir neðan er spilað á kristalsskálar í nokkrum stærðum til að fá fjölbreytta tóna. Hljómgæði þurfa að vera jafngóð og þegar hlustað er á tónlist. Það er misjafnt hversu vel tónarnir koma út þegar hlustað er með heyrnartólum. Betra er að nota hátalara til að hljóðbylgjurnar fái að njóta sín.

Til að prófa hvernig tónheilun virkar á ykkur er nóg að leggjast niður og loka augunum, meðan hlustað er á myndbandið. Athugið að börn og gæludýr vilja oft líka vera með!

 

Broshugleiðslan

Ég skora líka á ykkur að prófa hugleiðsluna sem er í myndinni Eat, Pray, Love (Borða, biðja, elska) en hún er svona:

Brostu með munninum, brostu með huganum og brostu með lifrinni.

Prófið þetta í tíu mínútur á dag og sjáið hvort það verða einhverjar breytingar á líðan ykkar eða orku.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.