Kiwanisklúbburinn Eldey styrkir Ljósið

 

Kiwanisklúbburinn Eldey, Kópavogi  afhenti  Ljósinu  föstudaginn 6. desember styrk að verðmæti tvær milljónir króna.    Var þetta  afrakstur af tveimur  góðgerðargolfmótum sem leikin hafa verið á hverju ári .
Mótin hafa alltaf verið haldin á Leirdalsvelli, sem er völlur Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Golfklúbburinn hefur alla tíð stutt við mótið m.a. með afslætti á vallargjaldi og aðstoð

við mótahaldið.
Í ár var ellefta árið sem mótið var haldið og hefur allur ágóði af mótinu síðustu ára runnið til Ljóssins. þá hefur Eldey einnig verið með svokallaða Eldeyjar óskabrunna sem eru staðsettir á fjölförnum stöðum og  hafa þeir verið að safna peningum til   Ljósins.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.