Aðventukvöld Ljóssins 2019

Kæru vinir,

Senn líður að jólum og því höldum við hátíðlegt aðventukvöld Ljóssins miðvikudaginn 27. nóvember klukkan 19:30.

Á jólakvöldinu hittast ljósberar, aðstandendur og starfsfólk Ljóssins og eiga saman notalega stund.

Sem áður verður spennandi dagskrá:

  • Óskar Guðmundsson les úr nýjustu bók sinni Boðorðin
  • Guðrún Árný mun syngja nokkur jólalög
  • Handverkssalan verður á sínum stað
  • Girnilegar veitingar í boði

Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur notalega kvöldstund.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.