Færði Ljósinu gjöf í tilefni 90 ára afmælis síns

Síðastliðinn þriðjudag leit Sesselja Sigurðardóttir við hjá okkur í Ljósinu og afhenti rausnarlega peningagjöf sem vinir og ættingjar hennar lögðu til  þegar hún hélt upp á 90 ára afmælið sitt nýverið. Sesselja þekkir vel til starfs Ljóssins en til okkar hafa nánir fjölskyldumeðlimir hennar sótt þjónustu.

Það var mikið fagnað í myndlistinni, sem þá var í gangi í salnum, þegar Erna Magnúsdóttir forstöðukona sagði frá þessu framtaki. Áður en Sesselja hélt úr húsi þá laumaði hún því heilræði að okkur að til þess að vera hraust á sínum aldri þyrfti maður að fara í daglega göngutúra, alveg sama hvernig viðrar.

Við þökkum Sesselju kærlega fyrir komuna og hennar rausnarlega framlag til endurhæfingarstarfssins.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.