Gleðifréttir af starfssemi Ljóssins

Kæru vinir,

Það er með mikilli gleði sem við segjum ykkur frá því að heil­brigðisráðherra hef­ur falið Sjúkra­trygg­ing­um Íslands að gera  þjón­ustu­samn­ing við Ljósið um end­ur­hæf­ing­arþjón­ustu við fólk sem greinst hef­ur með krabba­mein. Fjár­mögn­un Ljóss­ins hef­ur hingað til byggst á styrk­fram­lagi frá Vinnu­mála­stofn­un og heil­brigðisráðuneyt­inu til eins árs í senn og söfn­un­ar­fé, en með þessu breytta flæði fjármagns frá ríkinu munum við geta snúið okkur enn betur að innra starfi Ljóssins og að efla endurhæfingu krabbameinsgreindra.

Umfram allt er þetta staðfesting á því að starfssemi Ljóssins veiti einstaklingum sem greinast með krabbamein fyrirmyndarþjónustu sem skilar árangri.

„Árlega sækja á annað þúsund ein­stak­linga sér þjón­ustu hjá Ljós­inu. Því er mikið í húfi að tryggja rekstr­ar­grund­völl þess­ar­ar mik­il­vægu þjón­ustu þannig að not­end­ur og starfs­fólk búi við það lág­marks­ör­yggi sem verður að vera fyr­ir hendi í svona starf­semi,“ seg­ir Svandís Svavars­dótt­ir heil­brigðisráðherra í frétta­til­kynn­ingu sem var send fjölmiðlum í morgun.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.