Orlofsvika í Bergheimum

Bergmál líknarfélag býður ljósberum að njóta, hvílast, vera með skemmtilegu fólki, fara í gönguferðir eða bara hlusta á fuglana á orlofsviku á Sólheimum (Bergheimahúsi) í Grímsnesi í sumar.

Bergheimar er í eigu Bergmáls líknarfélags og á hverju sumri bjóða þau fólkinu okkar upp á ókeypis orlofsvikur. Í fyrra fór stór hópur frá Ljósinu og það er aftur í boði í ár.

Um er að ræða vikuna 13.-20. júní næstkomandi en skráning er hafin í móttöku í síma 561-3770

Ummæli frá ljósbera:

Þetta var algjör lúxus, öll aðstaða til fyrirmyndar, fallegt umhverfi, vel haldið utan um alla og skemmtilegar kvöldvökur. Bæði nærandi og gefandi og ég kynntist fullt af fólki og við erum ennþá að halda sambandi.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.