Ljósablaðið 2017

Nýtt Ljósablað var að líta dagsins ljós og er alveg óhætt að segja að hér er um mjög veglegt blað að ræða sem við erum virkilega stolt af að setja í dreifingu. Í blaðinu er sjónum aðeins beint að ungu fólki sem sækir þjónustu í Ljósið, en sá hópur fer ört stækkandi, eins og reyndar má segja um alla aðra hópa hér í Ljósinu.  Þar má jafnframt finna greinar eftir fagfólk Ljóssins, Ljósbera ásamt ýmsu öðru fróðlegu og áhugaverðu efni.  Einnig má finna þar brot af þeim verkefnum og viðburðum sem Ljósið tók þátt í frá því að síðasta blað kom út ásamt því að minnst er á nokkrar styrkveitingar svo eitthvað sé nefnt.

Blaðið er á leiðinni til Ljósavina og einnig mun það liggja víða frammi. Áhugasamir geta nálgast blaðið hjá okkur í Ljósinu að Langholtsvegi 43 og eins er hægt að senda okkur línu eða hringja í síma 561-3770 og óska eftir að fá það sent.

Blaðið má einnig skoða hér sem pdf Ljósablaðið 2017

Ritstjóri og höfundur efnis er Sigurður Ólafsson og er blaðið prentað í Litlaprenti.

 

 

 

er á leiðinni til Ljósavina

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.