Klapplið Ljóssins í Reykjavíkurmaraþoni

Eins og undanfarin ár verður klapplið Ljóssins á sínum stað til að hvetja okkar frábæru hlaupara til dáða í Reykjavíkurmaraþoninu. Við munum koma okkur fyrir við JL húsið á mótum Hringbrautar og Eiðisgranda. Þar munum við hvetja og hafa læti eins og okkur er einum lagið frá kl: 9:00 og þar til síðasti hlauparinn okkar fer framhjá.

Gaman væri ef klappliðið myndi mæta í Ljósalitunum, rauðu, hvítu og svörtu, búið að smyrja raddböndin, með einhverjar hvetjandi ásláttargræjur; potta, dósir, sleifar, hrossabresti eða flautur svo eitthvað sé nefnt og að ógleymdu góða skapinu.

Minnum svo á pastaveisluna í Ljósinu miðvikudaginn 16. ágúst frá kl. 17-19 þar sem bæði hlauparar og klapplið hita saman upp fyrir laugardaginn.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.