Öskudagur í Ljósinu

Á öskudaginn ætlum við í Ljósinu að gera okkur smá dagamun og hafa gaman saman. Við hvetjum fólkið okkar til að koma í búningum, jafnvel láta gamla drauma rætast og mæta sem Súperman eða Mjallhvít, býfluga eða banani. Starfsfólkið ætlar að skipta um hlutverk og vera í búningum, grínast smá og baka vöfflur eins og stundum er gert á öskudag. Hlökkum til að sjá þig.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.