Aðstandenda námskeið 20+

Ljósið hefur um langt skeið haldið námskeið fyrir aðstandendur krabbameinsgreindra, 20 ára og uppúr. Á námskeiðinu er skapaður er vettvangur fyrir aðstandendur til að hittast og ræða um reynslu sína, áhyggjur og þá líðan sem fylgir því að eiga náinn ástvin sem greinist með alvarlegan sjúkdóm. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 25. janúar kl. 16:30 í húsnæði Ljóssins að Langholtsvegi 43.

Frekari upplýsingar um dagskrá, verð, leiðbeinendur og fleira má finna hér.

Skráning í síma 561-3770

 

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.