Nýtt námskeið með Geggu

Nýtt spennandi námskeið með Geggu.

Hefst mánudaginn 27 apríl – 4 skipti

Kl: 10:00-12:00

Verð 3.000

Á námskeiðinu mun Gegga leggja áherslu á:

  • Hvernig hægt er að skapa sér meiri hamingju og vellíðan, sama hvað á gengur.
  • Aðferðir til að draga úr kvíða og streitu eins og  hugleiðslur og aðferð Byron Katie;The Work.  
  • Þjálfun í eigin ágæti og sjálfsást. 

byron_katie.jpgByron Katie er bandarískur höfundur sem öðlast hefur heimsfrægð fyrir að setja fram nýja aðferð sem hún kallar „Verkefnið“ til að vinna úr sársaukafullum hugsunum. Katie  bendir á árangursríka aðferð við að hreinsa til í eigin huga, losa sig við spennu og njóta lífsins eins og það mætir okkur á hverjum degi. Við getum öðlast innri frið og yfirvegun sem gerir okkur kleift að gera það besta úr vandamálunum sem mæta okkur á lífsleiðinni og elska það sem er í stað þess að streitast á móti því.                                                                                                                            

gegga.jpgÉg er kölluð Gegga og er frumkvöðull SMILER . Ég er hjúkrunarfræðingur og myndlistarkona með BA frá LHÍ. Ég hef starfað sem hjúkrunarfræðingur í 30 ár og þar af lengst af á LSH.

Í 10 ár var ég ljósmóðir á fæðingardeild LSH.

Bókin mín SMILER getur öllu breytt var gefin út  á íslensku og ensku árið 2012 í kjölfar vinnu með skartgripinn SMILER    sem ég hannaði árið 2008.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.