Tag: krabbameinsgreindir

30
jan
2017

Námskeið fyrir aðstandendur, börn 6-13 ára

Námskeið fyrir börn, 6 -13 ára hefst í Ljósinu 2. febrúar nk. kl. 16:30 og stendur til kl. 18.  Námskeiðið er fyrir börn og unglinga sem eiga það sameiginlegt að vera aðstandendur krabbameinsgreindra. Börnin fá tækifæri til að upplifa, skapa og tjá sig í gegnum leik og verkefni í öruggu og styðjandi umhverfi. Lögð er áhersla á að mæta þörfum hópsins og

Lesa meira

23
jan
2017

Útivistarhópur Ljóssins

Miðvikudagur 25. janúar Við ætlum að ganga á Álftanesi þennan miðvikudag. Hittumst á bílaplaninu við Bessastaði og strandlengjan verður könnuð. Þaðan er ótrúlega fallegt útsýni til Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Hittumst hress í hlýjum vetrarfatnaði og með bros á vör annað hvort í Ljósinu kl. 12.30 eða við Bessastaði kl. 13.00. Hlökkum til að sjá sem flesta.

23
jan
2017

Aðstandenda námskeið 20+

Ljósið hefur um langt skeið haldið námskeið fyrir aðstandendur krabbameinsgreindra, 20 ára og uppúr. Á námskeiðinu er skapaður er vettvangur fyrir aðstandendur til að hittast og ræða um reynslu sína, áhyggjur og þá líðan sem fylgir því að eiga náinn ástvin sem greinist með alvarlegan sjúkdóm. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 25. janúar kl. 16:30 í húsnæði Ljóssins að Langholtsvegi 43. Frekari upplýsingar

Lesa meira

18
jan
2017

Dagskrá vorsins hjá ungliðahóp Ljóssins, SKB og Krafts

Ungliðahópur Ljóssins, SKB og Krafts er ekkert að tvínóna við hlutina og nú þegar er dagskráin tilbúin fram á sumar.  Hópurinn hittist á fimmtudögum og er á jafningjagrunni. Dagskrá Ungliðahóps Ljóssins, Krafts og SKB vorið 2017 12. janúar – Bíóferð –Great Wall 26. janúar – Fimleikar í Björk 9. febrúar – Sund & Matur 23. febrúar – Bingókvöld 9. mars

Lesa meira

18
jan
2017

Slæður og hárkollur

Við í Ljósinu leitumst sífellt við að bæta þjónustu okkar við krabbameinsgreinda og koma til móts við þær þarfir sem við finnum að okkar fólk vill uppfylla.  Í því ljósi munum við nú bjóða upp á þjónustu í tengslum við hárkollur og höfuðföt.  Sigrún Marinósdóttir hárgreiðslumeistari verður á staðnum á mánudögum frá kl. 13-14:30 og aðstoðar við val á hárkollum, mátun

Lesa meira