Veiðiferð Ljóssins í Vífilstaðavatn 20. júní

Það er fátt betra en að vera við vatn eða árbakka, láta hugann reika, gleyma stund og stað og verða eitt með náttúrunni. Að bæta við þessa upplifun með því að vera með veiðistöng í hönd og fylgjast með því sem gerist á hinum endandum segja margir að sé ein sú besta núvitund sem til er. Þetta þekkja veiðimenn og þeir stunda Ljósið eins og svo margir aðrir.

Á miðvikudaginn kemur, þann 20. júní kl. 13 skunda veiðimenn og konur Ljóssins í veiðiferð í Vífilstaðavatn í Garðabæ. Lagt verður af stað frá Ljósinu um kl: 12:30 og eins er hægt að hittast við syðra bílaplanið við vatnið um kl. 13.

Skráning er hafin í Ljósinu og Ljósberar eru hvattir til að skrá sig með því að senda okkur tölvupóst á ljosid@ljosid.is eða hringja í síma 561-3770. Þeir sem eiga stangir eru hvattir til að taka þær með, en við verðum með auka stangir fyrir þá sem þurfa. Hlífðarfatnaður eins og gleraugu og húfa / derhúfa eru nauðsynleg og þeir sem eiga og nota vöðlur geta vissulega mætt með þær, en það er þó ekki nauðsynlegt.

Í viðiferðinni okkar í fyrra kom þessi líka flotti urriði á land á flugu sem hnýtt var í Ljósinu um veturinn. Hálft í hvoru má líta á þessa ferð sem slútt á fluguhnýtingum vetrarins og kastnámskeiði á vegum Ljóssins sem haldið var nýverið. Stefán Bjarni Hjaltested flugukastkennari tók að sér að aðstoða áhugasama kastara og bæði leiðbeina og leiðrétta köst og nú gefst tækifæri til að æfa köstin en frekar, prófa flugurnar sem hnýttar hafa verið í vetur og hugsanlega fara  heim með fisk á pönnuna. Það væri náttúrulega toppurinn á annars mjög góðum fluguvetri.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.