Útivistarhópur Ljóssins

Göngur útivistarhópsins eru skipulagðar gönguferðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins alla miðvikudaga.

Farið verður frá Ljósinu kl. 12:30 en einnig er hægt að mæta beint á bílastæðið sem gefið er upp fyrir viðkomandi göngu, rétt fyrir kl. 13:00. Dagskrá gönguhópsins er hægt að skoða hér, en yfir vetrartímann eru allar göngur með fyrirvara um breytingu vegna veðurs. Einnig er hægt er að fylgjast með dagskránni á Facebook hópnum Útivistarhópur Ljóssins.

Æskilegt er að þátttakendur geti gengið í eina klukkustund.

Umsjón með hópnum hefur Margrét Indriðadóttir, sjúkraþjálfari.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.