Stuðnings og fræðslunámskeið fyrir fólk með langvinnt krabbamein

hope.jpgNýtt námskeið hefst 8.febrúar 

Skráning og upplýsingar í síma 5613770

Aðalmarkmiðin með námskeiðinu eru að þátttakendur auki, jafnvægi sitt í daglegu lífi, starfsfærni, vellíðan og von. Á námskeiðinu gefst tækifæri til þess að hitta aðra í sömu sporum, fá fræðslu og stuðning við að þekkja eigin tilfinningar, hugsanir, efla sjálfsmyndina, draga úr þreytu, auka jafnvægi í daglegri iðju, styrkja tilgang og von, huga að næringu og kynnast slökun og árvekni.

Umsjón: Anna Sigríður Jónsdóttir BSc iðjuþjálfi og Rannveig Björk Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur (MSc í krabbameinshjúkrun og diplóma í hugrænni atferlisfræði). Rannveig Björnsdóttir næringarfræðingur, MSc verður með fræðslu um næringu í einum tímanum.

Námskeiðið byggir meðal annars á hugrænni atferlismeðferð (HAM). HAM-meðferð hefur verið notuð við margskonar andlegri vanlíðan; þunglyndi, kvíða, reiði, slöku sjálfstrausti, veikindum, ástvinamissi og fleiru. HAM felst í margskonar hugrænni og atferlislegri tækni sem hjálpar fólki meðal annars að breyta neikvæðum óhjálplegum hugsunum.                                          

Námskeiðið er á þriðjudögum í 10 skipti í 2 tíma í senn, kl. 13-15.  Námskeiðið byggir á fræðslu, stuttum verkefnum, umræðum og slökunar/núvitundar æfingum. Námskeiðið kostar 3000 kr

Tímum námskeiðsins er skipt niður í eftirfarandi efnisþætti:

 

 

  •  Kynning. Viðbrögð og aðlögun vegna veikinda.  
  •  Þreyta og jafnvægi í daglegri iðju
  •  Að þekkja eigin tilfinningar og hugsanir
  •  Holl næring og næringarvenjur
  •  Sjálfmynd og sjálfstyrkur
  •  Samskipti og félagslegur stuðningur
  •  Tilgangur, markmið og von
  •  Upprifjun og úrvinnsla

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.