Para / hjónanámskeið

Þar sem annar aðhjon.jpgilinn (báðir) hefur greinst með krabbamein.

Það getur haft mikil áhrif á parsambönd þegar annar einstaklingurinn greinist með krabbamein. Á þessu námskeiði fá pör tækifæri til að ræða og fræðast um áhrif veikinda á parsambönd og læra hvernig hægt er að vinna með þessi áhrif þannig að þau skapi ekki fjarlægð heldur nánd og vöxt.

Stjórnandi: Kristín Ósk Leifsdóttir. sálfræðingur

Nýtt námskeið auglýst síðar.

Þeir sem hafa áhuga hafi samband við Ljósið

Skráning er hafin í Ljósinu í síma 5613770.
Verð: 5000,- kr fy
rir parið.

Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:

  •   Áhrif sjúkdóma á tengsl og samskipti í parsamböndum
  •   Viðbrögð við áföllum og úrvinnsla tilfinninga
  •   Nánd til aukins vaxtar og samantekt á verkfærum til þroska og stuðnings

Nokkur ummæli um námskeiðið

  • Gott námskeið. Margt gagnlegt og gott. Fær mann til að hugsa og opna sig meira. Gott að eiga samræður við önnur pör sem eru með manni á námskeiðinu. Mikilvægt hvað mikið er rætt en ekki bara hlustað.

  • Alveg ljómandi gott. Fengum upplýsingar og tæki til þess að vinna áfram út frá. Skemmtilegt og afslappað. Takk fyrir.

  • Þetta hefur gefið mér mikið. Hafði engar væntingar en fékk svör.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.