_mg_3658_1.jpg

Kæru hlauparar…þið sem hlaupið fyrir Ljósið fáið öll borða/merki með Ljósamerkinu okkar svo allir sjái fyrir hvern þið eruð að hlaupa..við verðum í Laugardalshöllinni á morgun föstudag og afhendum merkin og nælur..Hlökkum til að sjá ykkur…

 

 Klapplið Ljóssins

Undanfarin ár höfum við fjölmennt í klapplið til að hvetja alla hlaupara áfram og sérstaklega þá sem hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoni á menningarnótt.   Nú biðlum við til ykkar allra sem viljið koma og vera í stemningunni með okkur laugardaginn 18 ágúst. Við erum fyrir neðan JL húsið og erum mætt á staðinn kl. 9:00 á laugardagsmorgni. Koooma svo Smile SmileSmile

Nú líður að árlega Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, sem verður þann 18 ágúst n.k, eins og undanfarin ár geta hlauparar hlaupið fyrir Ljósið á menningarnótt í íslandsbankahlaupinu. Á marathon.is er hægt að skrá sig sem hlaupara fyrir Ljósið. Endilega ef þið þekkið einhverja hlaupara að benda þeim á að hlaupa fyrir okkur, svo er hægt að heita á alla sem hlaupa fyrir Ljósið inn á hlaupastyrkur.is Allar nánari upplýsingar og skráning er á marathon.is

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.