Ný námskeið að byrja

Námskeið Ljóssins

Skráning hafin í síma 561 3770

 

boys.jpgKarlmenn og krabbamein fræðslufundir

Vinsæl námskeið sem miða að auknum skilningi og þekkingu á breytingarferli sem verður í lífi karlmanna sem greinast með krabbamein.

Umsjón: Matti Ósvald heilsufræðingur, gestafyrirlesarar eru geðlæknar,krabbameinssérfræðingur sjúkraþjálfarar og fleiri.

 Hefst miðvikudaginn 7 apríl 17:30-19:00, 8 skipti

 

 

lukka.jpg

Námskeið fyrir nýgreinda

Ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein á sl. einu og hálfa ári.

Fræðsla og umræður um samspil hugar, sálar og líkama. 

Unnið útfrá hugrænni atferlismeðferð.

Umsjón: Magnea B Jónsdóttir sálfræðingur.

Hefst mánudaginn 12 apríl kl. 10:00-12:00, 8 skipti.

th20090916060217strawberry_splash.jpgNámskeið í Heilsueflingu

Vinsæl námskeið í fyrirlestrarformi þar sem farið er í gegnum flest er viðkemur heilsu, bjargráðum, uppbyggingu á sjálfstrausti og almennri vellíðan.

Umsjón: Berglind Kristinsdóttir iðjuþjálfi. Gestafyrirlesarar, Matti Ósvald                    heilsufræðingur, Guðjón Bergmann fyrirlesari.

Hefst miðvikudagin 7 apríl kl 10:30-12:00, 8 skipti.

      

fjolskylda.jpgAðstandendur krabbameinsgreindra

7 vikna námskeið sem byggist á umræðum og fræðslu þar sem aðstandendur fá tækifæri til að tjá sig og deila reynslu með öðrum í sömu aðstæðum.

Umsjón: Magnea B Jónsdóttir sálfræðingur, Svandís Íris Hálfdánardóttir hjúkrunarfræðingur, Rósa Kristjánsdóttir djákni.

Hefst miðvikudaginn 7 apríl kl 19:30-21:30, 7 skipti.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.