Heilsuefling

                 Spennandi fræðslutímar  um heilsu og lífsstíl.

Námskeiðið byrjar 2. febrúar og eru skipulagðir fræðslutímar út mars.

Markmið:

Kynntar verða ýmsar hugmyndir, kenningar og  vangaveltur um heilsu. Kynning á hvernig takast á við breytingar í lífinu, lífsviðhorf rætt, sjálfstraust, geðorðin 10 tekin fyrir, markmiðssetning og óskaspjöld, auk þess sem bjargráð verða í brennidepli. Hvert umræðuefni verður kynnt í byrjun hvers tíma og síðan er gert ráð fyrir virkri umræðu þátttakenda auk spennandi verkefna.

Staður og stund:

Námskeiðið fer fram í jógasal Ljóssins á Langholtsvegi 43 á

mánudagsmorgnum frá 10.30-12.00.

Mælum með slökun kl. 12:30 að loknum léttum hádegisverði.

Þátttakendur:  Fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Umsjón: Berglind Kristinsdóttir iðjuþjálfi B.Sc., auk gestafyrirlesara.

Skráning fer fram hjá starfsfólki Ljóssins síma 5613770

Fræðslan er ókeypis.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.