Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að fólk sem sækja þjónustuna fái sérhæfða endurhæfingu og stuðning þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek, auk þess að fá stuðning við að setja sér markmið sem auka daglega virkni og hafa þannig áhrif á lífsgæði almennt.

Húsnæði Ljóssins er eins og fallegt heimili þar sem hægt er að koma í kaffihúsastemningu og spjalla við náungann.  Til að auka virkni og þrek býður Ljósið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Má þar nefna, heilsutengd námskeið, námskeið fyrir nýgreinda, fræðslufundi fyrir karlmenn, jóga, líkamsrækt, handverkshópa og fleira. (sjá dagskrá). Þátttakendur í Ljósinu koma að eigin frumkvæði og áhuga og raða saman dagskrá sem hentar hverju sinni. Í Ljósinu er mikið unnið með lífsgæðin og lífsgleðina og lítið er talað um sjúkdóma og veikindi.

Starfsemi Ljóssins er rekin alla virka daga frá kl. 8:30 til 16:00, auk þess sem sérskipulögð námskeið eru á kvöldin og laugardögum. Við erum á Langholtsvegi 43, 104 Rvk, gamla Landsbankahúsinu.

Yfirumsjón með starfinu hefur Erna Magnúsdóttir, iðjuþjálfi.


Hægt er að gerast styrktaraðili að Ljósinu með því að skrá nafn og kennitölu á netf. ljosid@ljosid.is
Félagsgjöld eru 3.500, kr. á ári.

Styrktarreikningur Ljóssins er 0130-26-410420
Kennitala: 590406-0740
Sími: 561-3770 Gsm: 695-6636

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.